mán 30. desember 2019 23:39
Brynjar Ingi Erluson
Klopp vill halda Lallana
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, vill halda Adam Lallana hjá félaginu en samningur hans rennur út næsta sumar.

Lallana er 31 árs gamall og hefur verið hjá Liverpool síðan 2013 er hann kom frá Southampton.

Meiðsli hafa oft sett strik í reikninginn hjá honum en hann er heill heilsu og hefur spilað 14 leiki á þessari leiktíð.

Samningur hans hjá Liverpool rennur út næsta sumar og er franska félagið Paris Saint-Germain sagt hafa mikinn áhuga á að semja við hann.

Klopp vill þó ólmur halda Lallana og gera eins árs samning við hann en það er Telegraph sem greinir frá.

Það er óvíst hvað Lallana gerir en hann vill stærra hlutverk og gæti hugur hans því leitað annað eftir tímabilið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner