Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 30. desember 2019 12:15
Elvar Geir Magnússon
Liverpool orðað við vinstri bakvörð
Max Clark í leik með Vitesse.
Max Clark í leik með Vitesse.
Mynd: Getty Images
Max Clark, vinstri bakvörður Vitesse Arnhem í Hollandi, hefur leikið fantavel á þessu tímabili. Það vel að njósnarar Liverpool eru sagðir hafa verið að fylgjast með honum.

Clark er 23 ára og hefur spilað fyrir yngri landslið Englendinga. Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, hefur fylgst með leikmanninum.

Clark tekur virkan þátt í sóknarleiknum og er duglegur við að koma með fyrirgjafir inn í teiginn.

Liverpool er vel sett með bakverði en gæti fengið Clark til að vera varaskeifa fyrir Andy Robertson.

Clark á 18 mánuði eftir af samningi sínum við Vitesse Arnhem en hann var á sínum tíma í herbúðum Hull.
Athugasemdir
banner
banner
banner