Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 30. desember 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mourinho hrósaði Ndombele mikið
Ndombele eltir hér Marco Stiepermann, leikmann Norwich.
Ndombele eltir hér Marco Stiepermann, leikmann Norwich.
Mynd: Getty Images
Franski miðjumaðurinn Tanguy Ndombele sneri aftur í lið Tottenham í 2-2 jafnteflinu gegn Norwich í gær og uppskar hrós fyrir frá Jose Mourinho.

Ndombele, sem var keyptur frá Lyon fyrir 65 milljónir punda - metfé fyrir Tottenham, var ekki í hóp gegn Brighton á öðrum degi jóla. Ndombele var ekki meiddur, en hann tjáði Mourinho það að honum liði ekki nægilega vel til að spila.

Sjá einnig:
Ndombele leið ekki nógu vel til að spila

Ndombele kom inn á miðjuna í gær og þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki verið nægilega góð þá hrósaði Mourinho Frakkanum.

„Mér fannst Ndombele algjörlega stórkostlegur," sagði Mourinho.

Á blaðamannafundinum bætti hann við: „Hann spilaði mjög, mjög vel. Við vorum án Dier og Winks, en hann og Eriksen stjórnuðu ferðinni."

Tottenham er sem stendur fimm stigum frá Meistaradeildarsæti, en liðið mætir Southampton á útivelli á nýársdag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner