Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 30. desember 2020 19:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Championship: Brentford kom til baka og vann
Fyrra marki Brentford fagnað
Fyrra marki Brentford fagnað
Mynd: Getty Images
Brentford 2 - 1 Bournemouth
0-1 Dominic Solanke ('25 )
1-1 Henrik Dalsgaard ('37 )
2-1 Tarique Fosu ('79 )

Brentford vann í dag endurkomusigur á Bournemouth í 22. umferð ensku Championship-deildarinnar.

Bournemouth komst yfir á 25. mínútu þegar Dominic Solanke kom boltanum í netið eftir undirbúning Lloyd Kelly.

Danirnir Mathias Jensen og Henrik Dalsgaard sáu til þess að staðan var jöfn í hléi. Dalsgaard skoraði eftir undirbúning Jensen.

Á 79. mínútu skoraði svo Ganverjinn Tarique Fosu sigurmark leiksins fyrir heimamenn í Brentford. Það kom eftir undirbúning Bryan Mbeumo. Brentford átti sextán tilraunir að marki Bournemouth gegn ellefu tilraunum gestanna.

Liðin voru fyrir leikinn jöfn að stigum, með 38 stig í 3.- 4. sæti deildarinnar. Brentford fór upp í 2. sætið, upp fyrir Swansea en Svanirnir leika gegn Reading klukkan 20:00.

Athugasemdir
banner
banner
banner