Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. desember 2020 11:38
Elvar Geir Magnússon
Coutinho á meiðslalistann
Coutinho fer af velli.
Coutinho fer af velli.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho meiddist á hné í leiknum gegn Eibar í gær, eftir að hafa komið inn sem varamaður.

Hann kom inn fyrir Miralem Pjanic á 66. mínútu en gat ekki klárað leikinn.

Coutinho verður frá í einhvern tíma en Barcelona hefur ekki gefið út hvesu lengi. Brasilíumaðurinn hefur skorað þrjú mörk og átt tvær stoðsendingar í fjórtán leikjum á þessu tímabili.

Þetta eru vondar fréttir fyrir Börsunga sem eru þegar án Ansu Fati sem er meiddur á hné og verður frá þar til í mars.

Lionel Messi ætti hinsvegar að vera klár en hann lék ekki í leiknum gegn Eibar í gær. Leikurinn endaði með 1-1 jafntefli en Börsungar hafa alls ekki staðið undir væntingum í upphafi nýs tímabils.

Sjá einnig:
Lægsti stigafjöldi Barcelona í sautján ár


Athugasemdir
banner
banner
banner