Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. desember 2020 22:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Einkunnir Newcastle og Liverpool: Darlow bestur en Salah slakur
Karl Darlow vel sáttur í kvöld.
Karl Darlow vel sáttur í kvöld.
Mynd: Getty Images
Newcastle og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í eina leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.

Karl Darlow var besti maður vallarins að mati Sky Sports en hann bjargaði heimamönnum frábærlega nokkrum sinnum í leiknum, þar á meðal einu sinni gegn Mo Salah í fyrri hálfleik þegar Egyptinn var í algjöru dauðafæri.

Það er Mo Salah sem fær lægstu einkunn eða fimm fyrir sína frammistöðu. Athygli vekur að Callum Wilson í framlínu Newcastle fær átta í einkunn.

Einkunnir Sky Sports:

Newcastle: Darlow (9), Clark (8), Fernandez (8), Schar (8), Yedlin (7), Matthew Longstaff (7), Hayden (7), Ritchie (7), Joelinton (7), Wilson (8), Murphy (6).
Varamaður: Almiron (6).

Liverpool: Alisson (6), Alexander-Arnold (7), Phillips (6), Fabinho (6), Robertson (7), Jones (6), Henderson (6), Milner (6), Salah (5), Firmino (6), Mane (6).
Varamenn: Wijnaldum (6), Thiago (6)

Maður leiksins: Karl Darlow.
Athugasemdir
banner
banner
banner