Newcastle 0 - 0 Liverpool
Topplið deildarinnar og Englandsmeistararnir í Liverpool heimsóttu Newcastle í úrvalsdeildinni í kvöld. Markalaust varð í viðureign liðanna og skiptu þau því stigunum jafnt á milli sín.
Liverpool var með boltann um 70% í fyrri hálfleik en Karl Darlow hélt markinu hreinu í marki Newcastle. Callum Wilson var þá ógnandi á hinum enda vallarins.
Í seinni hálfleik hélt Liverpool áfram að sækja og fékk færi eftir færi en inn vildi boltinn ekki. Alisson bjargaði þá sínum mönnum í marki Liverpool þegar heimamenn áttu sínar tilraunir. Thiago Alcantara kom inn á í liði Liverpool á 73. mínútu en honum tókst ekki að finna leiðina framhjá Darlow.
Hvorugu liðinu tókst að skora og því annað jafnteflið hjá Liverpool í röð staðreynd. Liðið er áfram í toppsætinu en þetta opnar dyrnar fyrir liðin fyrir neðan að nálgast meistarana enn frekar.
Athugasemdir