Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   mið 30. desember 2020 20:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Bruce rakst óvart í dómarann í svekkelsi sínu
Steve Bruce og Jurgen Klopp, með grímu.
Steve Bruce og Jurgen Klopp, með grímu.
Mynd: Getty Images
Steve Bruce var orðinn mjög spenntur og vonaðist til að sitt lið væri að komast yfir snemma leiks gegn Liverpool. Hann var tilbúinn að fagna en fékk ekki tilefni til þess og tók þá einhvers konar svekkelsis hopp.

Ekki vildi betur til en að aðstoðardómari gekk akkúrat framhjá Bruce á þeim tíma og rakst Bruce óvart í hann.

Lýsingarmennirnir á Amazon spurðu hvort hægt væri að færa Bruce til bókar fyrir þetta 'brot'.

Smelltu hér til að sjá atvikið

Staðan í leiknum er 0-0 og er seinni hálfleikur að hefjast. Liverpool hefur haldið boltanum 73% af leiknum en Newcastle hefur átt fleiri tilraunir að marki Liverpool, sex gegn fjórum hjá gestunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner