Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. desember 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Parker snýr aftur á hliðarlínuna ef leikið verður
Scott Parker.
Scott Parker.
Mynd: Getty Images
Scott Parker, knattspyrnustjóri Fulham, mun snúa aftur á hliðarlínuna í kvöld ef lið hans mætir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni.

Möguleiki er að leikurinn verði ekki spilaður vegna fjölda Covid-smita innan hóps Fulham. Það kemur í ljós í dag hvort leikurinn fari fram eða ekki.

Parker gat ekki stýrt Fulham af hliðarlínunni í markalausu jafntefli gegn Southampton á dögunum þar sem hann var í sóttkví eftir að aðili á heimili hans greindist með kórónuveiruna.

Hinn fertugi Parker er ekki með veiruna sjálfur og er núna laus úr sóttkví.

Parker mun í dag - ef leikurinn fer fram - mæta sínum gömlu félögum en hann spilaði sem leikmaður með Tottenham. Hann er staðráðinn í að koma Fulham úr fallsæti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner