Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. desember 2020 17:30
Elvar Geir Magnússon
Reynir PSG við Zaha?
Wilfried Zaha.
Wilfried Zaha.
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino er að öllum líkindum að fara að taka við frönsku meisturunum í PSG og samkvæmt fjölmiðlum hefur hann áhuga á að fá Wilfried Zaha, stjörnuleikmann Crystal Palace, til félagsins.

Zaha hefur verið í flottu stuði á tímabilinu og er með átta mörk í fjórtán leikjum.

Pochettino hafði áhuga á að fá Zaha til Tottenham þegar hann hélt um stjórnartaumana þar.

Zaha er samningsbundinn Palace til 2023 en hann er einnig sagður á óskalista AC Milan.

Á mánudaginn skoraði hann gegn Leicester í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner