Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 30. desember 2020 17:57
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Spánn: Þrjú rauð í sigri Granada
Kenedy skoraði tvö en annað var dæmt af.
Kenedy skoraði tvö en annað var dæmt af.
Mynd: Getty Images
Granada CF 2 - 1 Valencia
0-1 Kevin Gameiro ('36 )
1-1 Kenedy ('45 )
2-1 Jorge Molina ('88 )
Rautt spjald: Jason, Valencia ('70), Goncalo Guedes, Valencia ('73) & Domingos Duarte, Granada CF ('76)

Fjögur mörk voru skoruð í Granada í dag þegar Valencia mætti í heimsókn. Eitt markanna var dæmt af.

Kenedy skoraði á 15. mínútu en markið var dæmt af vegna brots í aðdragandanum. Kevin Gameiro skoraði svo á 36. mínútu eftir undirbúning frá Denis Cheryshev og kom gestunum yfir.

Kenedy jafnaði leikinn á þriðju mínútu uppbótartíma í fyrri hálfeik. Það mark fékk að standa.

Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í seinni hálfleik. Jason fékk sitt annað gula spjald á 70. mínútu, Goncalo Guedes fékk svo beint rautt spjald hjá gestunum fyrir mótmæli á 73. mínútu og Domingos Duarte fékk loks beint rautt hjá heimamönnum á 76. mínútu fyrir ljótt brot.

Sigurmark leiksins kom loks á 88. mínútu þegar Jorge Molina skoraði eftir undirbúning frá Alberto Soro. Granada er í 7. sæti deildarinnar og Valencia í 16. sætinu.
Athugasemdir
banner
banner