Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. desember 2020 16:30
Elvar Geir Magnússon
Van Dijk hjólar á Twitter
Mynd: Getty Images
Hollenski varnarmaðurinn Virgil van Dijk hjá Liverpool birti í gær myndband af sér á Twitter þar sem hann var hjólandi. Endurhæfing hans gengur vel eftir að hann skaddaði liðbönd illa í grannaslagnum gegn Everton.

Ekki er búist við því að Van Dijk snúi aftur til æfinga með liðsfélögum sínum fyrr en í fyrsta lagi í apríl og þá mun taka einhvern tíma fyrir hann að ná upp leikformi.

Talið er að þessi 29 ára leikmaður verði frá út tímabilið en hann gerir allt sem í hans valdi stendur til að snúa aftur sem fyrst. Hann er nú á tíundu viku í endurhæfingu.

Van Dijk gekkst undir aðgerð á hné í lok október og sjúkraþjálfarar Liverpool eru nú með hann í öruggum höndum.

Það eru þó líklega um fjórir mánuðir í að Van Dijk geti farið að spila fótbolta að nýju.


Athugasemdir
banner
banner
banner