Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   fim 31. janúar 2019 23:28
Elvar Geir Magnússon
Bjössi Hreiðars: Veit ekki hvaða heimildarmenn það eru
Sigurbjörn Hreiðarsson.
Sigurbjörn Hreiðarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, spjallaði við Fótbolta.net eftir tapið gegn KR í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í kvöld.

Lestu um leikinn: KR 5 -  3 Valur

Garðar Gunnlaugsson skoraði tvö mörk fyrir Val.

„Það vita allir hvað hann getur. Hann var frábær í teignum. Hann gerði þetta mjög vel kallinn," sagði Bjössi.

Bjarni Ólafur í fríi
Auk þess að ræða um leikinn var hann spurður út í leikmannamál Valsmanna. Umræða hefur verið um að bakvörðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson hafi ákveðið að hætta í fótbolta.

„Hann er bara í fríi. Hann hefur ekki tekið æfingar í smá tíma. Við sjáum bara hvað setur með það. Við sjáum hvað gerist þegar nær dregur."

Veit að þetta er bull shit
En er Hannes Þór Halldórsson á leiðinni í markið?

„Hann er bara að spila í Aserbaidsjan með sínu liði þar. Vonandi fær hann að spila þar og komast hærra í goggunarröðina þar. Við erum bara með okkar lið hérna en ég veit ekki hvað framtíðin ber í skauti sér."

Fréttablaðið sagði að Valur hefði gert samkomulag við Hannes, er það ekki rétt?

„Ég veit ekki hvaða heimildarmenn það eru. Ég veit að þetta er bull shit. Hann er bara úti í Aserbaidsjan."
Athugasemdir
banner
banner