Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fös 31. janúar 2020 14:15
Magnús Már Einarsson
Andre Gomes að verða klár eftir fótbrotið ljóta
Mynd: Getty Images
Andre Gomes, miðjumaður Everton, er á frábærum batavegi eftir að hafa fótbrotnað á skelfilegan hátt gegn Tottenham í nóvember.

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, kom með góðar fréttir af Gomes í dag.

Portúgalinn gæti snúið aftur þegar Everton mætir Arsenal þann 23. febrúar.

Ancelotti kom með verri fréttir af miðjumanninum Jean Philippe Gbamin.

Gbamin er á leið í aðgerð vegna meiðsla sem hafa verið að stríða honum allt tímabilið. Hann gæti náð lokasprettinum á tímabilinu í vor ef allt gengur vel.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner