Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 31. janúar 2020 14:34
Elvar Geir Magnússon
Arteta: Ekki búast við fleiri tíðindum
Mikel Arteta.
Mikel Arteta.
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, skellti sér í viðtal við Sky Sports í dag. Hér má sjá það helsta sem þar kom fram.

Um Cedric Soares:
„Ég er mjög ánægður með Cedric Soares. Hann er leikmaður sem hefur verið á blaði hjá okkur og passar vel inn. Hann þekkir deildina og þarf ekki aðlögunartíma. Við erum með fáa hægri bakverði."

Um Pablo Marí:
„Þetta er hluti af því að ná jafnvægi á hópinn. Þú getur ekki verið með sex réttfætta miðverði. Hann gefur okkur möguleika og hjálpar okkur í leikstílnum."

Verða fleiri tíðindi frá Arsenal í dag?
„Aldrei segja aldrei en ég er nokkuð viss um að við erum búnir."

Um tíma sinn hjá Arsenal hingað til:
„Það hafa verið margar áskoranir vegna meiðsla og leikbanna en ég er ánægður með þá stefnu sem við erum að taka. Leikmenn hafa meðtekið nýjar hugmyndir og viðbrögð stuðningsmanna hafa verið jákvæð."
Athugasemdir
banner
banner
banner