Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 31. janúar 2020 20:26
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Haukar skoruðu fimm gegn Selfossi
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
Haukar 5 - 2 Selfoss
Mörk Hauka:
Tómas Leó Ásgeirsson
Kristófer Dan Þórðarson
Oliver Helgi Gíslason
Nikola Dejan Djuric
Þórður Jón Jóhannesson

Mörk Selfoss:
Kenan Turudija (2)

Haukar tryggðu sér 5. sætið í B-deild Fótbolta.net mótsins með öruggum sigri gegn Selfossi í dag.

Tvenna Kenan Turudija komst ekki nálægt því að nægja Selfyssingum sem fengu fimm mörk á sig á Ásvöllum.

Tómas Leó Ásgeirsson, Kristófer Dan Þórðarson, Oliver Helgi Gíslason, Nikola Dejan Djuric og Þórður Jón Jóhannesson skiptu mörkunum á milli sín.

Liðin enduðu í 3. sæti sinna riðla með tvo tapleiki og einn sigur. Haukar unnu Vestra á meðan Selfoss lagði Víking Ólafsvík.

B-deild
Úrslitaleikur: Keflavík - Afturelding (Reykjaneshöllin - 5.2)
Bronsleikur: Þróttur V. - Njarðvík (Fylkisvöllur - 8.2)
5. sæti: Haukar
6. sæti Selfoss
Leikur um 7. sæti: Víkingur Ó. - Vestri (Skessan - 1.2)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner