Manchester United gæti lagt fram annað tilboð í Joshua King, framherja Bournemouth, að sögn sky Sports.
Manchester United vill fá framherja til að fylla skarð Marcus Rashford sem verður frá keppni vegna meiðsla næstu mánuðina.
Bournemouth er í harðri fallbaráttu og er ekki tilbúið að selja King.
Hinn 28 ára gamli King þekkir til hjá Manchester United því hann var á mála hjá félaginu frá 2009 til 2013 og spilaði meðal annars í varaliði félagsins undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
King fór á þeim tíma oft á lán en hann lék síðan með Blackburn í tvö ár áður en Bournemouth keypti hann árið 2015.
Athugasemdir