Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fös 31. janúar 2020 13:39
Magnús Már Einarsson
Klopp rólegur á markaðinum - Sagði fréttamönnum að eiga gott kvöld
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, ætlar ekki að gera neitt á félagaskiptamarkaðinum áður en félagaskiptaglugginn lokar í kvöld.

Klopp fékk Takumi Minamino frá Salzburg fyrr í mánuðinum og það verða einu kaup Liverpool að þessu sinni.

Klopp sat í dag fyrir svörum á fréttamannafundi fyrir leikinn gegn Southampton á morgun.

„Leikmenn að koma? Ekkert. Fara? Ekkert sem ég hef heyrt af. Þið getið farið frá Melwood eftir þennan fund og átt gott kvöld eða farið á annan stað þar sem er meiri spenna. Þetta verður rólegt kvöld," sagði Klopp.
Athugasemdir
banner
banner