Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 31. janúar 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Man Utd getur stolið Willian Jose
Mynd: Getty Images
Sky Sports greinir frá því að Manchester United bjóðist að kaupa Willian Jose, sóknarmann Real Sociedad, fyrir 25 milljónir punda.

Tottenham er í viðræðum við spænska félagið en vill helst fá sóknarmanninn lánaðan út tímabilið til að leysa Harry Kane af hólmi.

Man Utd vantar sóknarmann til að fylla í skarð Marcus Rashford sem er frá í nokkra mánuði vegna bakmeiðsla.

Willian Jose er 28 ára og hefur skorað 53 mörk í 130 leikjum frá komu sinni til Sociedad fyrir þremur og hálfu ári síðan.

Willian Jose bað um sölu frá félaginu fyrr í mánuðinum og hefur verið utan hóps síðustu þrjá leiki.
Athugasemdir
banner
banner
banner