Willum Þór Willumsson, einn af fjórum leikmönnum sem var kallaður úr U21 landsliðinu, er ekki í hóp Íslands gegn Liechtenstein.
Willum kom upp í A-hópinn ásamt þremur öðrum úr U21 landsliðinu, þeim Jóni Degi Þorsteinssyni, Ísak Bergmanni Jóhannessyni og Sveini Aroni Guðjohnsen.
Sveinn byrjar leikinn gegn Liechtenstein í kvöld en Ísak og Jón Dagur byrja á bekknum.
Það mega bara vera 12 leikmenn á bekknum og kemst Willum ekki í hópinn í dag.
Úr textalýsingunni:
Willum Þór Willumsson er utan hóps. Það voru leikmenn tæpir fyrir leikinn en voru á endanum leikfærir og því þarf Willum að bíta í það súra epli að vera ekki í hóp. Hér að neðan er hann að fylgjast með U21 landsliðinu.
Hægt er að fara í beina textalýsingu hérna og þar má meðal annars sjá byrjunarlið Íslands.
Athugasemdir