Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 31. maí 2021 21:33
Aksentije Milisic
AC Milan að kaupa Tomori frá Chelsea
Mynd: Getty Images
AC Milan er að ganga frá kaupum á Fikayo Tomori en hann stóð sig vel hjá félaginu í vetur. Tomori var á láni frá Chelsea.

Þessi 23 ára gamli varnarmaður kom í janúar til AC Milan og spilaði 17 deildarleiki. Hann skoraði á m.a. mark í 3-0 útisigri á Juventus.

Fabrizio Romano segir að AC Milan sé að ganga frá kaupum á leikmanninum frá Chelsea og mun hann kosta 25 milljónir punda. Hann fær fimm ára samning hjá Milan.

Stefano Piolo, þjálfari AC Milan, talaði um það fyrr í þessum mánuði að hann vildi ólmur kaupa Tomori.

„Við viltum hvað við viljum og við vitum hvað Tomori vill. Við sjáumst hvað gerist þegar tímabilið klárast," sagði Pioli í byrjun maí mánaðar.


Athugasemdir
banner
banner
banner