Argentínski fjölmiðlamaðurinn Vero Brunati segir að Sergio Aguero sé í læknisskoðun hjá Barcelona en að henni lokinni fer hann til móts við argentínska landsliðið.
Aguero hefur leikið sinn síðasta leik fyrir Manchester City og er að ganga í raðir Börsunga. Í læknisskoðuninni er lögð áhersla á að skoða hné leikmannsins en meiðsli hafa hamlað honum talsvert.
Aguero er 32 ára og er markahæsti leikmaður Manchester City í sögunni. Reiknað er með því að Börsungar muni bíða með að kynna hann formlega þar til eftir Copa America.

Fleiri fréttir af leikmannamálum Barcelona. Varnarmaðurinn Jules Kounde hjá Sevilla er orðaður við félagið en samkvæmt Mundo Deportivo hefur Real Madrid einnig áhuga á Frakkanum.
Samningur Kounde við Sevilla er til 2024 og ljóst að hann mun ekki fást ódýrt.
Athugasemdir