„Mér fannst við bara góðar í leiknum, náðum að sækja fullt og skapa fullt af færum. Þær voru reyndar sterkar líka en mér fannst við heilt yfir betri í leiknum," sagði Anna María Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, eftir 2-1 tap gegn ÍBV í Mjólkurbikarnum.
Stjarnan fékk þó nokkuð af færum í dag, en náðu ekki að setja fleiri mörk í dag.
„Já við áttum fullt af færum og ég veit ekki hvað oft þær björguðu á seinustu sekúndu, en kannski bara vantar eitthvað extra upp á. Við vorum að skapa okkur fullt af færum og mér fannst við vera að gera nóg til að vinna leikinn."

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 - 2 ÍBV
ÍBV fékk vítaspyrnu á 18. mínútu leiksins eftir að Olga og Chante hoppa upp í sama boltann.
„Mér fannst þetta ekki vera víti. Ég skil ekki svona trekk í trekk fær Chante ekki að njóta vafans, hún er eini markmaðurinn finnst mér í deildinni sem eiginlega fólk keyrir inn í hana og það er ekkert dæmt, svo gerir hún það einu sinni og er bara sterkari og þá er dæmt víti. Mér finnst það mjög skrítið," hafði Anna María um vítadóminn að segja.
Næsti leikur Stjörnunnar er á móti Fylki á sunnudaginn í deildinni.
„Þurfum að byggja ofan á þennan leik, spila svona og reyna að ná fleiri mörkum" sagði Anna María að lokum.
Athugasemdir