Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
banner
   mán 31. maí 2021 22:51
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Guðni: Líður ekkert rosalega illa þegar önnur lið fá hornspyrnu
Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét
„Alltaf svekkjandi að tapa leik. Við höfðum trú á því að við gætum stolið þessu en við verðum að sætta okkur við að við erum úr bikarnum í ár," sagði Guðni Þór Einarsson, annar af þjálfurum Tindastóls, eftir tap gegn Breiðabliki í Mjólkurbikarnum.

„Við vildum loka á kantana og bakverðina hjá þeim, þær eru oboðslega sterkar þær Agla og Áslaug Munda og við vildum stoppa þær. Við lögðum upp með að vera þéttar til baka og beita skyndisóknum, ekkert leyndarmál."

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 -  1 Tindastóll

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan

Fyrra markið kom upp úr hornspyrnu en Blikar fengu sautján slíkar í leiknum.

„Við gerðum okkur grein fyrir að þær myndu örugglega fá margar hornspyrnur í leiknum. Við fáum ekki oft á okkur mark eftir hornspyrnur og það var svekkjandi að fá á sig mark eftir fast leikatriði í fyrri hálfleik því við erum sterk í þeim atriðum. Við erum með að mínu mati einn besta markmanninn í deildinni og mér líður ekkert rosalega illa þegar önnur lið fá hornspyrnu."

Laufey Harpa Halldórsdóttir fékk höfuðhögg undir lok leiks, hvernig er staðan á henni og hvað gerðist?

„Hún fær eitthvað högg og smávægilegan heilahristing. Hún er að fara hitta lækni eftir smá stund og við vonum að þetta sé ekki alvarlegt," sagði Guðni.
Athugasemdir
banner
banner