Samkvæmt erlendum heimildum þá er Manchester City alvarlega að skoða það að bjóða Sergio Ramos tveggja ára samning.
Ramos er á leið burt frá Real Madrid en hann er að renna út af samningi og hefur ekki náð samkomulagi um nýjan samning.
Manchester City er að leita sér að varnarmanni eftir að Eric Garcia yfirgaf félagið og hélt til Barcelona. Þá hefur Aymeric Laporte verið orðaður burt frá félaginu.
Samkvæmt ESPN, þá er Pep Guardiola mjög hrifinn af leiðtogahæfileikum Ramos og vill hann hinn 35 ára gamla Ramos til félagsins ef hann framlengir ekki við Real.
Florentino Perez og Sergio Ramos eru sagðir vera fara á fund á föstudaginn næstkomandi og þar á að ræða framtíð Ramos hjá félaginu.
Athugasemdir