Moise Kean verður ekki með ítalska landsliðinu á EM núna í sumar. Lokahópurinn verður tilkynntur seinna í dag en greint var frá því í dag að Kean sé ekki einn af þeim sem kemur til greina.
Kean var hjá PSG á láni frá Everton og skoraði sautján mörk í 41 leik.
Kean var hjá PSG á láni frá Everton og skoraði sautján mörk í 41 leik.
Kean á að baki níu A-landsleiki og hefur skorað í þeim tvö mörk.
Þessir framherjar koma til greina í hópinn:
Andrea Belotti (Torino), Domenico Berardi (Sassuolo), Federico Bernardeschi (Juventus), Federico Chiesa (Juventus), Ciro Immobile (Lazio), Lorenzo Insigne (Napoli), Matteo Politano (Napoli)
Líklegt er að einn af þessum muni detta út þegar lokahópurinn verður tilkynntur.
Athugasemdir