Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 31. maí 2021 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar glotti - „Kjartan skapar stundum smá glundroða"
Kjartan Henry
Kjartan Henry
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kjartan Henry Finnbogason skoraði sitt fyrsta mark fyrir KR í sumar í gærkvöldi. Hann skoraði snemma leiks með skoti úr teignum eftir laglegan undirbúning frá Kennie Chopart.

Kjartan gekk í raðir KR frá Esbjerg fyrir gluggalok nú fyrr í mánuðinum.

Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var spurður út í hvað Kjartan gefur liðinu.

„Hann gefur okkur nýja vídd, hann er gríðarlega sterkur inn í teignum. Hann er sterkur inn í klefa, sterkur í hópnum og skorar mörk. Hann skapar stundum smá glundroða í varnarlínu andstæðinganna. Hann er frábær leikmaður og hefur gefið okkur smá attitjúd sem við höfum þurft," sagi Rúnar og glotti þegar hann lýsti sínum manni.

Kjartan er þekktur fyrir að láta finna vel fyrir sér.

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan sem og markið sem Kjartan skoraði.

Lestu um leikinn: KR 3 - 1 ÍA


Rúnar: KR völlurinn er sögufrægur og hér eigum við að vinna
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner