Búið er að tilkynna hópinn hjá íslenska landsliðinu sem heldur til Færeyja á miðvikudaginn og mætir þar heimamönnum á Tórsvelli þann 4. júní.
Landsliðið lék gegn Mexíkó í Bandaríkjunum um síðustu helgi en sá leikur tapaðist með tveimur mörkum gegn einu.
KSI gaf út nú í kvöld hópinn sem fer til Færeyja en landsliðið er mætt til Íslands og æfir nú á Laugardalsvelli þessa daganna.
Það fara 24 leikmenn til Færeyja og eru nokkrar breytingar á hópnum frá síðasta leik. Fjórir leikmenn úr Pepsi Max deildinni eru í hópnum en það eru þeir Brynjar Ingi Bjarnason, Gísli Eyjólfsson, Þórir Jóhann Helgason og Ísak Óli Ólafsson.
Hópurinn:
Markmenn:
Elías Rafn Ólafsson - Fredericia
Rúnar Alex Rúnarsson - Arsenal
Ögmundur Kristinsson - Olympiacos
Varnarmenn:
Alfons Sampsted - Bodö Glimt
Brynjar Ingi Bjarnason - KA
Guðmundur Þórarinsson - New York City FC
Hjörtur Hermannsson - Bröndby IF
Ísak Óli Ólafsson - Keflavík
Kolbeinn Þórðarson - Lommel SK
Valgeir Lunddal Friðriksson - Häcken
Miðjumenn:
Andri Fannar Baldursson - Bologna
Aron Einar Gunnarsson - Al Arabi
Aron Elís Þrándarson - OB
Birkir Bjarnason - Brescia
Gísli Eyjólfsson - Breiðablik
Ísak Bergmann Jóhannesson - IFK Norrköping
Jón Dagur Þorsteinsson - AGF
Mikael Neville Anderson - FC Midtjylland
Stefán Teitur Þórðarson - Silkeborg IF
Þórir Jóhann Helgason - FH
Sóknarmenn:
Albert Guðmundsson - AZ Alkmaar
Jón Daði Böðvarsson - Millwall
Kolbeinn Sigþórsson - IFK Göteborg
Sveinn Aron Guðjohnsen - OB
Athugasemdir