Hægri bakvörðurinn Birkir Már Sævarsson átti fínan leik þegar Ísland tapaði 1-2 fyrir Mexíkó í vináttulandsleik.
„Gerði afskaplega vel þegar hann skoraði mark Íslands," var sagt um Birki í einkunnagjöf Fótbolta.net frá leiknum. Hann fékk 7 í einkunn.
Þessi hægri bakvörður Vals lék sinn 98. landsleik en hann stefnir á það að vera með í leikjunum mikilvægu í september þegar undankeppni HM hefst aftur.
Hann var spurður að því eftir leikinn gegn Mexíkó hvort hann væri farinn að hugsa um að halda upp á 100 landsleiki, það sé mjög stutt í að hann komist yfir þann múr.
„Nei, ég ætla að byrja á því að halda mér í landsliðinu og fá vonandi að spila þessa leiki í haust. Ég tel mig hafa lagt inn umsókn um að fá að spila þessa leiki í haust og vonandi helst ég heill og næ að spila sem flesta leiki með Val áður en að því kemur," sagði varnarmaðurinn geðþekki.
Allt viðtalið við hann má sjá hér að neðan.
Viðtal við Birki Má Sævarsson sem lék sinn 98. A-landsleik í vináttuleiknum gegn Mexíkó í Dallas á laugardagskvöldið. ⚽️🇮🇸👌 pic.twitter.com/2v2IiBRTIj
— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) May 30, 2021
Athugasemdir