Brynjar Atli Bragason, markvörður Breiðabliks, framlengdi í dag samning sinn við félagið til næstu tveggja ára.
Brynjar, sem er 22 ára gamall, er uppalinn í Njarðvík en gekk í raðir Blika fyrir tveimur árum og var lánaður strax í kjölfarið til Víkings Ólafsvíkur og spilaði 12 leiki með liðinu í Lengjudeildinni.
Markvörðurinn efnilegi sat á bekknum hjá Blikum allt síðasta tímabil og var Antoni Ara Einarssyni til halds og trausts. Hann gegnir sama hlutverki á þessu tímabili.
Hann framlengdi í dag samning sinn við Breiðablik til næstu tveggja ára eða til 2024.
Brynjar á að baki 6 leiki fyrir yngri landslið Íslands.
Athugasemdir