Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 31. maí 2022 08:00
Victor Pálsson
Hazard reyndi að gefa syni Kroos kampavín
Mynd: EPA

Nokkuð skondið atvik átti sér stað í búningsklefa Real Madrid eftir sigur í Meistaradeild Evrópu um helgina.


Real vann þar Liverpool með einu marki gegn engu en Vinicius Junior gerði þar gæfumuninn og skoraði eina mark leiksins.

Thibaut Courtois átti stórleik í marki spænska liðsins en landi hans Eden Hazard sat allan tímann á bekknum.

Eftir leikinn var titlinum vel fagnað í klefa Real en þar mátti sjá Hazard reyna að gefa syni Toni Kroos smá kampavín sem fékk að fljóta út um allt.

Kroos tók eftir því hvað Hazard væri að gera um leið og var ekki lengi að stöðva verk samherja síns.

Þetta atvik má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner