þri 31. maí 2022 21:40
Ívan Guðjón Baldursson
Richarlison: Lampard veit hvað ég vil
Mynd: EPA

Framtíð brasilíska landsliðsmannsins Richarlison, 25 ára, er óljós eftir nýjustu ummæli hans. 


Richarlison er meðal bestu leikmanna Everton og hefur verið eftirsóttur af stórliðum á borð við Barcelona og Tottenham.

Richarlison er öflugur framherji sem getur leikið á báðum köntum eða sem fremsti sóknarmaður.

„Það er flókið að tala um félagaskipti því mér líður vel hjá Everton og stuðningsmennirnir elska mig. Ég hef í raun ekkert að segja um framtíðina, stjórnin veit hvað ég vil og Lampard veit það líka," sagði RIcharlison, en nefndi ekki hvað það er sem hann vill.

„Ég ætla sjálfur ekki að eyða neinni orku í að spá í minni eigin framtíð. Ég ætla að njóta þess að spila fótbolta með Brasilíu í sumar án þess að hugsa um neitt annað. Framtíðin kemur svo í ljós."

Richarlison á tvö ár eftir af samningnum við Everton og mun félagið ekki sætta sig við minna en 50 milljónir punda til að selja framherjann.


Athugasemdir
banner
banner