Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. júlí 2021 17:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Albert lék allan leikinn í sigri AZ á Real Sociedad
Mynd: Getty Images
Albert Guðmundsson var í byrjunarliði AZ Alkmaar sem lék æfingarleik við Real Sociedad í dag.

Leiknum lauk með 1-0 sigri AZ Alkmaar en markið skoraði Zakaria Aboukhlal á 33. mínútu.

Albert var nálægt því að bæta við öðru marki AZ á 60. mínútu þegar hann var kominn einn í gegn en Alex Remiro í marki Sociedad sá við honum.

AZ Alkmaar leikur sinn síðasta æfingarleik sunnudaginn 8. ágúst þegar liðið mætir Torino á heimavelli.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner