Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 31. júlí 2022 22:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Enska liðið truflaði blaðamannafund með látum - „It's coming home"
Mynd: EPA
Enska kvennalandsliðið varð Evrópumeistari í fyrsta sinn í kvöld þegar liðið lagði Þýskaland 2-1 eftir framlengdan leik í úrslitum á Wembley í kvöld.

England komst yfir með marki frá Ella Toone þegar rúmur klukkutími var liðinn af leiknum. Þýskaland jafnaði metin tæpum 20 mínútum síðar og tryggðu sér framlengingu.

Chloe Kelly sem kom inná sem varamaður rétt eftir að England komst yfir tryggði liðinu sigurinn með marki á 110. mínútu.

Þessu var eðlilega vel fagnað en eftir leikinn gat Sarina Wiegman þjálfari liðsins ekki svarað spurningum á blaðamannafundi þar sem leikmenn liðsins ruddust inn og sungu 'Football's coming home' með miklum látum.

Hægt að sjá atvikið hér fyrir neðan. Sjón er sögu ríkari.


Athugasemdir
banner
banner