Barcelona lagði fram tilboð í Joao Felix leikmann Atletico Madrid.
Hinn 21 árs gamli Joao Felix kom til Atletico Madrid frá Benfica árið 2019 fyrir 122 milljónir punda. Hann hefur ekki alveg staðið undir þeim verðmiða en Atletico hefur mikla trú á leikmanninum.
Barcelona hefur haft samband við Atletico um að fá leikmanninn á láni. Atletico neitaði tilboðinu og segir að Felix fari ekki neitt.
Atletcio freistar þess að vinna spænsku deildina annað árið í röð og vonast til að Felix muni loksins springa almennilega út á þessari leiktíð.
Athugasemdir