Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 31. ágúst 2021 08:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dagur í lífi Fabrizio Romano
Mynd: Fabrizio Romano - Facebook
Fabrizio Romano hefur farið mikinn í sumar þegar kemur að félagsskiptaglugganum í evrópu.

Romano er oftar en ekki fyrstur með fréttirnar þegar leikmenn eru að skipta um lið.

Youtube rás B/R Football fylgdi honum heilan dag sumarið 2019. Hann er búsettur í Milan á Ítalíu og hann segir að hann sé alltaf á ferðinni til að hlera um mögulega félagsskipti og hringir allt að 50 símtöl á dag.

Hefur góð samskipti við félögin til að fá staðfest hvort það sem hann hafði heyrt sé rétt. Myndband sem sýnir dag í lífi Fabrizio Romano má sjá hér að neðan, mjög áhugavert.

Félagsskiptamarkaðurinn lokar í kvöld og það verður væntanlega nóg að gera hjá Romano í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner