Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 31. ágúst 2021 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Pogba: Greenwood sá besti í að klára færin
Mynd: Getty Images
Manchester United átti ekki sinn besta leik gegn Wolves um helgina. United vann þó leikinn með einu marki gegn engu.

Mason Greenwood skoraði markið þegar um 10 mínútur voru eftir af leiknum. Með þessu marki varð hann fjórði leikmaðurinn í sögu ensku úrvalsdeildarinnar til að skora 20 mörk áður en hann verður tvítugur að aldri.

Paul Pogba miðjumaður United hrósaði Greenwood mikið í viðtali eftir leikinn.

„Greenwood er aðallega örfættur en hann getur skotið með báðum fótum og hann er ótrúlegur í að klára færin. Ég held að hann sé bestur í að klára færin af þeim leikmönnum sem ég hef æft með," sagði Pogba.

„Hann er yngstur en hann er bara svo ótrúlegur og ég vona að hann skori fleiri mörk, verði betri og hjálpar okkur að vinna deildina á ný, hann er mjög ungur og mjög hæfileikaríkur svo ég mun pressa á hann að verða betri og betri."
Athugasemdir
banner
banner
banner