Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 31. ágúst 2022 15:00
Elvar Geir Magnússon
Akanji í læknisskoðun hjá City - „Here we go!“
Mynd: Getty Images
Fabrizio Romano greinir frá því að frágengið sé að miðvörðurinn Manuel Akanji gangi í raðir Englandsmeistara Manchester City frá Borussia Dortmund.

„Here we go!“ skrifar Romano se þýðir að allt sé klappað og klárt. Leikmaðurinn sé búinn að samþykkja samning og muni á næstu klukkustundum gangast undir læknisskoðun.

City er nú þegar með fjóra miðverði; Aymeric Laporte, Ruben Dias, John Stones og Nathan Ake. Akanji kemur til með að berjast við þá um sæti í liðinu.

Hinn 27 ára gamli Akanji lék alls 36 leiki með Dortmund á síðustu leiktíð og hefur verið mikilvægur partur af liðinu síðustu árin.



Athugasemdir
banner
banner
banner