Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 31. ágúst 2022 19:55
Brynjar Ingi Erluson
Haaland bætti met Aguero og Quinn
Erling Braut Haaland
Erling Braut Haaland
Mynd: EPA
Erling Braut Haaland, framherji Manchester City á Englandi, er þegar byrjaður að slá metin í ensku úrvalsdeildinni en enginn hefur skorað fleiri mörk í fyrstu fimm leikjum deildarinnar en Haaland.

Haaland skoraði þrennu í fyrri hálfleik gegn Nottingham Forest í fimmtu umferð deildarinnar í kvöld og var þetta annan leikinn í röð þar sem hann gerir þrennu.

Hann er með samtals níu mörk í fyrstu fimm leikjunum en enginn annar hefur afrekað það.

Sergio Aguero skoraði átta mörk í fyrstu fimm leikjum sínum fyrir Manchester City og þá gerði Mick Quinn það sama fyrir Coventry City árið 1992.

Haaland er sjöundi leikmaðurinn sem skorar tvær þrennur í röð og aðeins fjórðir leikmaður Manchester City sem nær að skora fleiri en eina þrennu á tímabili fyrir félagið.


Athugasemdir
banner
banner