Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 31. ágúst 2022 21:52
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Aftur skoraði Douglas Luiz beint úr hornspyrnu
Douglas Luiz
Douglas Luiz
Mynd: EPA
Í annað sinn á tímabilinu tókst Douglas Luiz að skora beint úr hornspyrnu en hann gerði það í 2-1 tapi Aston Villa fyrir Arsenal í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Luiz skoraði beint úr hornspyrnu í sigri Aston Villa gegn Bolton í enska deildabikarnum á dögunum og hann var síðan aftur á ferðinni í kvöld.

Hann tók hornspyrnu á 74. mínútu. Aaron Ramsdale kom út úr markinu og stóð Ollie Watkins fyrir honum. Luiz náði að stýra boltanum í netið. Leikmenn Arsenal vildu fá aukaspyrnu fyrir brot á Ramsdale en VAR dæmdi markið gott og gilt.

Hægt er að sjá hornspyrnuna hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner