Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 31. ágúst 2022 19:32
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu mörkin: Haaland gerði þrennu í fyrri hálfleik - Kominn með 9 mörk
Erling Braut Haaland
Erling Braut Haaland
Mynd: EPA
Norski framherjinn Erling Braut Haaland er í fantaformi á sínu fyrsta tímabili með Manchester City en hann er búinn að skora þrennu í fyrri hálfleik gegn Nottingham Forest.

Haaland skoraði þrennu í síðasta leik liðsins í deildinni og er nú annan leikinn í röð kominn með aðra þrennu.

Haaland skoraði fyrsta markið á 12. mínútu eftir sendingu frá Phil Foden og gerði svo annað markið ellefu mínútum síðar.

Norðmaðurinn fulkomnaði þrennu sína á 38. mínútu eftir smá skallatennis inn í teig. John Stones skallaði boltann fyrir markið á Haaland sem gerði þarna níunda mark sitt á tímabilinu.

Hægt er að sjá öll mörk Haaland hér fyrir neðan.

Sjáðu fyrsta mark Haaland
Sjáðu annað mark Haaland
Sjáðu þriðja mark Haaland
Athugasemdir
banner
banner
banner