Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 31. ágúst 2022 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungur aðdáandi Southampton fór illa með Azpilicueta
Mynd: EPA

Southampton vann góðan sigur á Chelsea í gær en lokatölur urðu 2-1.


Reece James var fjarverandi vegna veikinda en fyrirliðinn Cesar Azpilicueta var í hægri bakverði í liði Chelsea í leiknum.

BT Sport deildi myndbandi á Twitter þar sem leikmennirnir eru að bíða eftir að geta komist út á völl fyrir leikinn í gærkvöldi. Þar má sjá ungan stuðningsmann Southampton rétta út höndina eins og hann ætli að heilsa Azpilicueta.

Þegar Azpilicueta ætlar að taka í höndina á drengnum tekur sá stutti höndina í burtu. Mikill húmoristi þarna á ferð. Atvikið má sjá hér fyrir neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner