Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 31. október 2019 14:11
Hafliði Breiðfjörð
Bose mót kvenna í fyrsta sinn í ár
Íslandsmeistarar Vals eru með í Bose móti kvenna í nóvember.
Íslandsmeistarar Vals eru með í Bose móti kvenna í nóvember.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bose mót kvenna verður haldið í fyrsta sinn í ár og hefst um miðjan nóvember.

Bose mótið hefur farið fram undanfarin ár en þetta er í fyrsta sinn sem kvennalið taka þátt í mótinu.

Fjögur lið eru skráð til leiks í mótinu og þar á meðal eru Íslandsmeistarar Vals en tímasetningar eru ekki klárar ennþá.

Liðin:
Valur
FH
Keflavík
KR
Athugasemdir
banner