Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fim 31. október 2019 13:00
Magnús Már Einarsson
Elokobi hoppaði brjálaður upp í stúku
Mynd: Getty Images
George Elokobi, fyrrum varnarmaður Wolves, brjálaðist eftir að hafa spilað með Maidstone United gegn Braintree Town í ensku utandeildinni í gærkvöldi. Eftir 1-1 jafntefli liðanna lenti Elokobi í rifrildi við stuðningsmenn Braintree.

Elokobi hoppaði upp í stúku og fór að rífast við stuðningsmenn heimaliðsins. Liðsfélagar hans hjá Maidstone mættu einnig upp í stúku til að reyna að hafa hemil á Elokobi.

Elokobi ku hafa espað áhorfendur Braintree upp í upphitun fyrir leikinn og í leiknum fékk hann að heyra það. Eftir leikinn varð síðan allt vitlaust eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.

Hinn 33 ára gamli Elokobi á marga aðdáendur á Íslandi en hann var mikið til umfjöllunar í „Sunnudagsmessunni" fyrir nokkrum árum.

Sjá einnig:
Elokobi í einkaviðtali við Fótbolta.net árið 2012

Athugasemdir
banner
banner
banner