Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 31. október 2019 11:00
Elvar Geir Magnússon
Juventus vill fá hinn eftirsótta Haaland
Mynd: Getty Images
Juventus undirbýr 40 milljóna evra tilboð í norsku stjörnuna Erling Braut Haaland sem spilar fyrir RB Salzburg. Þetta kemur fram í Gazzetta dello Sport.

Þessi 19 ára sóknarmaður er einn umtalaðasti ungi leikmaður heims í dag en hann skoraði tvennu gegn Napoli í Meistaradeildinni í síðustu viku.

Ítalíumeistarar Juventus vilja styrkja sóknarleik sinn og horfa til Haaland sem hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Real Madrid.

Haaland hefur verið að raða inn mörkum fyrir RB Salzburg og Juventus ku vera tilbúið að opna veskið duglega til að fá hann til Tórínó.
Athugasemdir
banner
banner
banner