Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 31. október 2019 15:30
Elvar Geir Magnússon
Lautaro Martínez orðaður við Man Utd
Lautaro Martínez.
Lautaro Martínez.
Mynd: Getty Images
Mundo Deportivo segir að Manchester United og Barcelona hafi áhuga á argentínska sóknarleikmanninum Lautaro Martínez.

Martínez hefur verið á eldi með Inter á Ítalíu en næsta sumar virkjast riftunarákvæði í samningi hans upp á 111 milljónir evra.

Talað hefur verið um áhuga Börsunga á leikmanninum en nú er sagt að United hafi blandað sér í slaginn.

Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur skorað fimm mörk í 10 leikjum í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili en samningur hans við Inter er til 2023.
Athugasemdir
banner
banner