Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fim 31. október 2019 12:34
Elvar Geir Magnússon
Líklegast að Aston Villa - Liverpool verði í janúar
Harvey Elliott, leikmaður Liverpool.
Harvey Elliott, leikmaður Liverpool.
Mynd: Getty Images
Verið er að reyna að finna hentuga lausn á dagsetningu fyrir leik Aston Villa og Liverpool í 8-liða úrslitum deildabikarsins.

Guardian greinir frá því að líklegast sé að leikurinn verði spilaður 8. janúar.

Upphaflega var áætlað að spila í desember en þá er leikjadagskráin hjá Liverpool ótrúlega þétt þar sem liðið keppir á HM félagsliða í Katar 18. - 21. desember.

Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, sagði í gær að liðið gæti þurft að draga sig úr keppni í deildabikarnum ef ekki finnst ásættanlegur leikdagur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner