Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 31. október 2019 20:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
„Messi þarf að fara til Real til að sanna hann sé sá besti"
Lionel Messi.
Lionel Messi.
Mynd: Getty Images
Argentíski markvörðurinn Hugo Gatti sem lék lengi vel með Boca Juniors í heimalandinu, er ekki á því að landi hans Lionel Messi hafi gert nóg til að hægt sé að tala um að hann sé einn sá besti í sögunni.

Gatti segist hins vegar vita hvað þarf til, hann segir að Messi þurfi að fara úr þessu heimilislega umhverfi sem hann þekkir orðið svo vel í Barcelona og fara til erkifjendanna í Real Madrid.

„Hann þarf að þora að fara til Real Madrid og sýna sig og sanna líkt og Cristano (Ronaldo) gerði, annars verður hann bara metinn eins og hver annar leikmaður. Cristano fór til besta félags í heimi. Messi hins vegar hefur alltaf haldið kyrru fyrir hjá Barcelona á stað sem er eins og heimili fyrir hann."

„Messi stendur sig vel þegar þeir láta hann standa sig vel. Það er auðvelt að standa sig vel þegar allt er með þér í hag á heimaslóðum," sagði hinn 75 ára gamli Gatti.
Athugasemdir
banner
banner