Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 31. október 2019 16:30
Elvar Geir Magnússon
Vill sjá Grealish eða Maddison í Man Utd
Jack Grealish, leikmaður Aston Villa.
Jack Grealish, leikmaður Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Wes Brown, fyrrum varnarmaður Manchester United, segir að United ætti að reyna að fá Jack Grealish eða James Maddison til að auka sköpunarmáttinn á miðsvæðinu.

„Í janúarglugganum þarf United annan sóknarmann og sóknarmiðjuman. Það vantar töframann í tíuna," segir Brown.

„Grealish og Maddison eru með sín einkenni og það er gaman að sjá þá spila. Maður sér ekki marga enska leikmenn sem eru eins og þeir."

„Grealish finnur alltaf sendinguna. Maddison hefur alltaf verið góður og hann er svakalega ógnandi. Þetta eru leikmenn á besta aldri sem myndu hjálpa mikið."

Grealish er fyrirliði Aston Villa og Maddison hefur verið að blómstra með Leicester.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner