Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 31. október 2019 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Zidane ánægður með vinnuframlag Benzema
Benzema er að gera það gott.
Benzema er að gera það gott.
Mynd: Getty Images
Karim Benzema hefur verið að gera það gott á þessu tímabili í liði Real Madrid sem er í toppbaráttu á Spáni.

Zinedine Zidane knattspyrnustjóri spænska stórliðsins er ánægður með vinnuframlag Benzema.

„Karim breytist ekkert, hann er alltaf samur við sig. Það er mikilvægt að hann sé að skora enda spilar hann í treyju númer níu hjá Real Madrid," sagði Zidane.

Benzema er sá leikmaður í La Liga sem hefur komið að flestum mörkunum, búinn að skora sjö og leggja upp þrjú. Hann er markahæstur ásamt Gerard Moreno og Loren Morón.

„Hann gerir svo miklu meira en að skora bara mörk, hann gerir alltaf mikið fyrir liðið. Ég er virkilega ánægður með framlag hans til liðsins," sagði Zidane.
Athugasemdir
banner
banner